04/01/2026
Hamrabrekkur 10 eru tilbúnar!
Þetta verkefni var mjög skemmtilegt og mikil útrás fyrir sköpunargleðina.
Við viljum þakka sérstaklega Mood Interiors fyrir frábæra þjónustu og aðstoð, ásamt frábærum kjörum á fyrsta flokks flísum og eldhúsborðplötu. Endalaust af ótrúlega fallegum lausnum í boði og mælum við með að kíkja við í verslun þeirra.
Ljósakerfið er frá Plejd og þökkum við Ískraft fyrir framúrskarandi þjónustu. Plejd kerfi er klárlega framtíðin og ótrúlega auðvelt fyrir hvern sem er að forrita lýsinguna eftir sínu höfði.
Besta byggingavöruverslun landsins Húsasmiðjan Grafarholti fær líka risaþakkir fyrir góða þjónustu og aðstoð einsog ávallt.
Við erum að hefja fleiri verkefni og eigum fleiri lóðir. Við bjóðum upp á að byggja hús frá grunni fyrir fólk og afhenda fullbúið, einnig getum við verið innan handar í framkvæmdum ef fólk vill gera þetta sjálft!
Þökkum Gunnar Bjarki einnig fyrir þessar frábæru myndir!