GHJ Coaching

GHJ Coaching

Share

Fyrir alla þá sem vilja bæta lífsstíl sinn, ná markmiðum sínum og láta drauma sína rætast bæði í einkalífi og starfi.

06/07/2026

✨ Hvað gefur þér orku? ✨

Við lifum í hröðum heimi þar sem er mikið áreiti og alltaf nóg að gera. Þetta tæmir orkubyrgðir okkar og við verðum þreytt og uppgefin — en það eru svo margar leiðir til að fylla á okrutankinn aftur! 💪

🌿 Fara út að hreyfa sig — Ferðast í göngutúr, hlaupa eða hjóla. Ferskt loft og hreyfing eru kraftaverk fyrir líkama og sál!

👨‍👩‍👧‍👦 Hitta fjölskyldu og vini — Hlæja, tala saman, finna kærleika þeirra sem okkur þykir vænt.

🎭 Fara í leikhús eða á tónleika — Að upplifa listir saman er nærandi og gefur okkur nýja sýn á lífið.

☕ Gefa sér tíma — Stundum er kaffibollinn í friði og kyrrð það sem við þurfum mest á að halda!

🌅 Vera í náttúrunni — Íslenska náttúran er ótrúleg gjöf — notum hana!

💬 Hvað eykur ÞÍNA orku? Skrifaðu í athugasemdir — mig langar að heyra! 👇

05/07/2026

Sunnudagshugleiðing!

Hugsaðu um allt sem gefur þér orku
Staldraðu við í smá stund og hugsaðu um hvað ertu í raun og veru að segja sjálfri/sjálfum þér núna?

Eru raddir í höfðinu á þér sem draga úr þér, sem hvísla að þú tilheyrir ekki, að þú getir ekki það sem þig dreymir um, að þú komist ekki þangað sem þú stefnir, að þú sért ekki nóg, eða að þetta sé bara ekki fyrir þig og þú skulir ekki einu sinni reyna
Hvað ef það er ekki satt?

Gefðu þér tíma til að skoða hugsanir þínar. Lokaðu augunum og spurðu þig: Hvað ef þetta er ekki satt? Hvað ef það er mögulegt og þú hefur kraft og dug til að láta þetta rætast?
Hugleiðing inní vikuna fyrir þig
„Hvað þarf ég að hætta að segja sjálfri mér til að sjá sannleikann innra með mér og finna hvað ég er mögnuð/magnaður?"

09/06/2026
09/06/2026

Hvernig ætlar þú a hreyfa þig í dag?

08/06/2026

Þetta er ein af þeim myndum sem ég sé fyrir mér um líf mitt eftir starfslok en þá ætla ég að ferðast meira og leika mér 🌞
Hvernig ætlar þú að hafa líf þitt á þessum tímamótum?

05/06/2026

Ertu kona á aldrinum 55-65 ára og vilt leyfa þér að blómsta eftir að vinnu ævinni lýkur?
Á námskeiði sem ég ætla að vera með fimmtudaginn 11 júní kl. 20, kenni ég þér leiðir sem þú getur nýtt þér til að gera þessi kaflaskil að bestu árunum þínum. Skráning fer fram í skilaboðum og þar er einnig hægt að óska eftir frekari upplýsingum :)

31/05/2026

Þekki ég styrkleika mína og er ég að nota þá?

Við höfum öll styrkleika en það er undir okkur komið að finna þá og nota þá.
Þegar við horfum á styrkleika erum við um leið að horfa á það sem við erum góð í og þar með erum við að styrkja sjálfstraust okkar og sjálfsmynd. Með því að beina hugsunum okkar að þeim hlutum sem við erum góð í þá vex trú okkar á okkur sjálf og við förum að sjá fyrir okkur lífið sem við viljum.

Hvatning vikunnar: Byrjaðu daginn þinn á að spyrja þig hvaða styrkleika ætla ég að leggja áherslu á í dag? Þannig beinir þú hugsunum þínum að því í hverju þú ert góð/ur og beina þannig huga þínum í átt að styrk þínum. Með því að horfa á styrk sinn frekar en veikleika aukum við gleði og kjark í lífi okkar sem hjálpar okkur að skapa það líf sem við viljum.

23/05/2026

Ég gef sjálfri mér alla þá ást og athygli sem ég þarfnast

Oft erum við dugleg að hugsa um það sem er neikvætt í lífi okkar, hvernig væri lífið ef við hugsum um það góða í lífi okkar og allt sem við höfum fyrir að þakka. Ég skora á þig að beina huganum að öllu því góða sem kemur til þín dag hvort sem það er skemmtilegt fólk, fallegt umhverfi, góður matur, veittu litlu hlutunum í umhverfi þínu athygli og ekki gleyma að veita þér athygli og hvað þú getur gert í dag til að hlúa að þér hvort sem það er að fara í göngu, sund, hitta fjölskyldu og vini. Oftar en ekki eru það litlu hlutirnir í lífinu sem fylla okkur orku.

06/05/2026

Hvenær staldraðir þú við síðast og lést þig dreyma um framtíðina?
Hvernig verður líf mitt eftir eitt ár?
Hvað hefur mig alltaf langað til?
Hvernig get ég látið það rætast?

Mér finnst mjög gaman að ferðast ig hef farið mjóg víða. Frá því að ég fór í mína fyrstu utanlandferð hef ég farið í 2 til 3 ferðir flest ár, ég held að ég eigi eftir að koma í eina heimsálfu og fer þangað í nóvember á þessu ári 🥰

Ég er líka mjög oft spurð að því hvernig ég hafi efni á öllum þessum ferðalögum? Svarið er einfalt, þarna liggur fókusinn minn og með þvì að beina huganum að því sem mig langar til finn ég leið til að láta það rætast. Því það sem þú hugsar mest um í lífi þínu vex og dafnar. Hugsaðu um það sem þú vilt og þú munt finna leið til að það rætast 💪

Photos 02/05/2026

Betra að njóta en þjóta 🥰

Want your business to be the top-listed Furniture Store in Dalvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Öldugata 25
Dalvík
621