27/09/2025
Ég því miður tapaði póstinum mínum og því get ég ekki haft samband við þá sem sendu mér póst og eru á biðlistanum mínum.
Pósturinn [email protected] er virkur nú svo vinsamlegast hafið samband annað hvort með því að senda póst eða í gegnum facbook
16/09/2025
🤔 𝐄𝐫𝐮 𝐝𝐫𝐚𝐮𝐦𝐚𝐫 þí𝐧𝐢𝐫 𝐚ð 𝐬𝐞𝐠𝐣𝐚 þé𝐫 𝐞𝐢𝐭𝐭𝐡𝐯𝐚ð 𝐦𝐢𝐤𝐢𝐥𝐯æ𝐠𝐭?
Ég hef haft ástríðu fyrir draumum síðan ég var unglingur og fann fljótt að þeir voru meira en bara tilviljun. Þeir eru mikilvæg samskiptaleið sálarinnar.
Ef þú hefur einhvern tímann vaknað eftir draum og velt því fyrir þér hvað hann gæti þýtt, þá er þetta námskeið fyrir þig!
Ég mun kenna þér að 𝐭ú𝐥𝐤𝐚 𝐝𝐫𝐚𝐮𝐦𝐚 þí𝐧𝐚 svo þú getir nýtt þér þessa öflugu innsýn. Lærðu að skilja viðvörunarmerkin og hvatninguna.
Ekki missa af skilaboðum sem geta breytt lífi þínu. ✨
Fáðu verkfærin til að byrja að hlusta í dag.
Nánari upplýsingar og skráning eru á vefnum.
13/09/2025
🗝️ 𝐀𝐟𝐤óð𝐚ð𝐮 𝐥𝐞𝐲𝐧𝐝𝐚𝐫𝐦á𝐥 𝐬á𝐥𝐚𝐫𝐢𝐧𝐧𝐚𝐫
Hefurðu velt því fyrir þér hvað draumar þínir eru að reyna að segja þér?
Draumar eru ekki bara tilviljanakenndar myndir – þeir eru vegvísar sálarinnar sem geta sýnt þér hvar þú stendur í lífinu, hvaða breytingar eru nauðsynlegar eða hvað þú ættir að varast.
Ég hef hlustað á mína drauma frá því ég var unglingur og það hefur algjörlega breytt minni leið.
Á þessu námskeiði lærir þú að:
• Rýna dýpra í drauma þína.
• Túlka skilaboðin sem þeir bera.
Taktu stjórnina og byrjaðu að skilja þitt innra sjálf! ⬇️
Skráning fer aðeins fram á vefnum.
31/08/2025
Nýja heimasíðan mín komin í loftið www.spamidill.com
Því miður glataði ég tölvupóstum svo ég vil biðja þá sem eru ennþá á biðlista að hafa samband aftur. Afsakið þetta
spamidill.com
20/08/2025
Frábært nám sem er svo þess virði að gefa sér
Þ𝗔Ð Þ𝗔𝗥𝗙 𝗛𝗨𝗚𝗥𝗘𝗞𝗞𝗜 𝗧𝗜𝗟 𝗔Ð 𝗕𝗥𝗘𝗬𝗧𝗔 - 𝗨𝗺𝘀ó𝗸𝗻𝗮𝗿𝗳𝗿𝗲𝘀𝘁𝘂𝗿 𝗿𝗲𝗻𝗻𝘂𝗿 ú𝘁 í 𝗱𝗮𝗴!
Til að gera raunverulegar breytingar á lífi okkar þurfum við að vera tilbúin að vinna vinnuna, skuldbinda okkur til gefa okkur sjálfum tíma og gera það sem best er fyrir okkur hverju sinni.
Það er auðvelt að horfa út um gluggann á lífið þjóta hjá, vorkenna sér svolítið fyrir að finna tómleikann hið innra, benda á alla aðra sökudólga en okkur sjálf og halda svo áfram að ganga sama hringinn aftur og aftur, kannski óánægð, kyrrstæð, hlutlaus, án væntinga.
👉Hefurðu pælt í því að hugsanlega ertu á mikilvægum tímamótum í þínu lífi?
Tímamótum þar sem þú hefur kostinn á að ákveða að taka stjórnina og lifa fyrir þig? 👈
Það þýðir ekki að þú hættir að elska aðra eða vera til staðar fyrir fólkið þitt, alls ekki. Í raun þýðir það að þú getur verið enn heilli í því að vera til staðar á þínum forsendum. Þú gefur af öllu hjarta, en þú setur heilbrigð mörk og passar að fórna þér ekki fyrir aðra.
Þú ert nefnilega það dýrmætasta sem þú átt vegna þess að ÞÚ heldur þínu lífi í höndum þér. Þú ert skapari þess, leikstjóri og aðalleikari.
👉Hvaða líf viltu skapa?
Í 9 mánaða náminu Þí𝗻 𝗽𝗲𝗿𝘀ó𝗻𝘂𝗹𝗲𝗴𝗮 𝘂𝗺𝗯𝗿𝗲𝘆𝘁𝗶𝗻𝗴 bjóðum við þér stuðning, leiðsögn, heiðarlegan spegil, dýpri andlegar tengingar og dásamlegt samfélag fólks sem er á sama ferðalagi og þú. Við erum hér fyrir hvort annað, þannig eflum við hugrekkið okkar og nýtum kraft heildarinnar til að taka stóru og litlu skrefin sem þarf til að raunverulega breyta lífinu.
Þátttakendur okkur hingað til hafa gert magnaðar breytingar á sínu lífi, er kominn tími að þér?
Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti í dag 20. ágúst, en allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni okkar starcodesacademy.is.
15/08/2025
Audur Jonsdottir og Hrönn Friðriksdóttir Námskeiðið Hugarflæði
– hugleiðsla og skapandi skrif
Langar þig að skrifa og fiska djúpsjávarfiska úr vitundinni?
Þegar þú skrifar veistu meira en þig grunar. Í þér býr ýmislegt sem orðin fanga, megnug þess að koma þér á óvart. Orðin þín.
Hugleiðsla tengir hugann við djúpið í vitundinni, allt sem þar býr. Á námskeiðinu Hugarflæði verður hugleiðsla notuð til að opna hugann áður en byrjað er að skrifa. Á milli skrifæfinga verður hugleitt og þannig losað um hugmyndaflugið, flæðið og áræðnina. Með því móti má bæði veiða djúpsjávarfiska og finna orð sem eiga eftir að fæða af sér eitthvað stærra. En jafnframt nota skrifin til að skoða vitundina og skerpa innsæið.
Kennd verða skapandi skrif og gerðar skrifæfingar stílaðar inn á að opna fyrir flæðið og ná að kjarna hugmyndir. Byrja að skrifa – á skapandi hátt! Já, eða efla hugann til að halda áfram með það sem leynist í skrifborðsskúffunni.
Einnig verður farið yfir hvernig má draga skáldsögu í höfn, aðferðir til að búa til lifandi karaktera og svo, auðvitað, verður talað um hvernig litlir galdrar geta fengið texta til að lifna við – svo eitthvað sé nefnt.
Leiðbeinendur eru Auður Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, og Hrönn Friðriksdóttir spámiðill sem hefur ástundað hugleiðslu í áratugi, meðal annars til að styrkja innsæið.
Námskeiðið verður helgina 6. og 7. september, báða daga frá klukkan 10.00 til 15.30.
Verð 60.000
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband í einkaskilaboðum.
19/03/2025
Mæli með að skoða nærandi stundir sem Starcodes skólinn verður með á morgun, fimmtudag á vorjafnvægri 💚
05/01/2025
Gleðilegt ár og takk fyrir árið 2024. Án ykkar væri vinnan mín ekki gerleg, þið öll þarna úti eruð mér dýrmæt. Vona að árið 2025 verði ykkur dásamlegt í alla staði.
Ég flutti í lok ágúst í Garðabæ.
14/04/2024
Var í viðtali hjá Gísla Hvanndal
Hrönn Friðriksdóttir Spámiðill: Andleg málefni með Gísla Hvanndal
Hrönn er fædd í Reykjavík í desember 1957. Hrönn hefur verið skyggn frá fæðingu en fór ekki að sinna andlegum málum fyrr en 1996. Hún gerði sér ekki grein fy...