29/08/2026
Alltaf gaman að gera Kjarval ruggustól - þessi fékk loksins að komast heim eftir langa bið eftir fallegu kálfsskinni. Viðurinn var allur pússaður upp og síðan olíuborinn með olíu sem hvíttar aðeins. Gull fallegur gripur
23/07/2026
Egg-ið tilbúið til afhendingar - alltaf svo gaman að vinna svona glæsilega klassíska hönnun.
Allur gamli svampurinn tekinn í burtu og nýr sérsniðinn frá DK settur í staðinn. Það geri ég alltaf enda ekki vænlegt til góðrar endingar að líma ofan á gamla.
21/06/2026
Thonet No. 14 stól,hannaður af Michael Thonet árið 1859. Smíðaður úr gufubeygðu beyki (bentwood), tækni sem Thonet þróaði og gerði heimsfræga. Talinn fyrsta raunverulega fjöldaframleidda húsgagnið og eitt mest selda húsgagn sögunnar.
Við fáum mikið til okkar stóla þar sem rattanið er farið að slitna. Ástæðan gæti legið í því hvað loftið er þurrt hjá okkur hér í norðrinu. Í þessu verkefni var farin sú leið að sniða setur og þær klæddar svampi og Sorensen Leather í litnum BRANDY
17/06/2026
Model 42 er einn þekktasti stóll danska húsgagnahönnuðarins Kai Kristiansen. Hann var hannaður á fimmta áratug síðustu aldar og er talinn eitt af táknmyndum danskrar húsgagnahönnunar. Einstaklega vel hannaður til að draga að borði og gefur auk þess létt og fágað yfirbragð. Bakið er ögn hreyfanlegt og fylgir vel líkamsstöðu notandans.
Viðurinn var hreinsaður upp og olíuborinn.
Leðrið er frá NEVOTEX og heitir “Vintage” og liturinn chocolate. Þetta leður er frekar “hrátt” og verður bara flottara með tímanum.
Það var glöð kona sem setti þessar gersemar í skottið og keyrði norður til Akureyrar
10/06/2026
Það bætist í “Egg körfuna” ……… hlakka til að segja ykkur söguna á bak við þetta eintak 🤗
22/04/2026
Barnum áklæðið frá kemur svo vel út á minna nýtískulegum stólum og þeim sem nýrri eru - margir litir og einnig til röndótt
08/04/2026
Annar Krysset sem kemur úr sömu stórfjölskyldunni, setti myndir af hinum fyrr á árinu. Fyrir margt löngu þótti “góð hugmynd” að pensla bæði leður og tréverk með Kjörvara - mæli ekki með 🥴 Nýtt skinn og sæti
02/04/2026
Tveir illa farnir Sindrastólar fengu ný skinn frá Svo falleg gæða lambaskinn frá þessu flotta fyrirtæki.