17/04/2026
, lærlingurinn okkar til síðustu misseri, var að ljúka við þetta glæsilega verkefni fyrir dóttur sína!
Dóttirin var með skýra sýn: stóllinn átti að vera í „Goth“ stíl. Hrafnhildur tók áskoruninni og útkoman er er heldur betur rokkað!. Stóllinn er klæddur í biksvart pluss, skreyttur með fallegu kögri á sætinu og leðursnúru í bakinu sem gefur honum þetta rétta dökka og flotta yfirbragð.
Framundan eru spennandi tímar hjá Hrafnhildi en hún heldur til Danmerkur í vor til að ljúka sveinsstykkinu sínu.
lærlingur hönnun
26/03/2026
Sýningareintak af Chester
B: 180 H: 120
65.000,-
26/03/2026
Sýningareintak
Stofuborð eftir Guðbjörgu Magnúsdóttur.
L: 120 B: 70 H: 40
20.000,-
26/03/2026
Koddi Delux.
Nýr höfuðgafl úr mjúku leðri sem gefur svefnherberginu hlýlegan og dálítið hráan karakter. Fullkominn fyrir þá sem elska norræna hönnun og vandað handverk.
islenskheim
13/03/2026
Stundum finnur maður hreinlega ekki „þennan eina rétta“ úti í búð. Viðskiptavinurinn okkar var búinn að leita lengi að hinum fullkomna sófa sem passaði bæði við rýmið og sýnina, en án árangurs.
Hann kom til okkar með hugmyndina og við hönnuðum og smíðuðum draumasófann nákvæmlega eins og hann átti að vera. Frá teikningu yfir í þessa mjúku boucle-fegurð. Sófinn er klæddur í Camira Yoredale ullaráklæði.
31/12/2025
Við óskum viðskiptavinum okkar farsældar á komandi ári og þökkum kærlega fyrir viðskiptin á því liðna.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur árið 2026! 🥂
Lokað er föstudaginn 2. janúar
Opnum aftur hress mánudaginn 5. janúar.
Áramótakveðja,
G.Á. húsgögn
03/10/2025
Þegar flugfélög hrynja, þá stendur sófinn samt!
G.Á. húsgögn – ending sem flýgur lengra 🥳
En að öllu gamni slepptu þá er þetta sérsmíðuð útfærsla af Geitir sófanum okkar.
👉 https://gahusgogn.is/vorur/sofar/geitir-ledur/
👉 https://gahusgogn.is/vorur/sofar/geitir/
Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna - Vísir
Innanstokksmunir úr höfuðstöðvum Play hafa þegar verið auglýstir til sölu, aðeins fjórum dögum eftir að tilkynnt var um að rekstri félagsins væri hætt. Uppgefið verð fyrir allt það sem hefur verið auglýst til sölu er 13,5 milljónir króna. Enn á þó eftir að verðleggja s...
02/07/2025
Í gær, 1. júlí, fagnaði G.Á. húsgögn 50 ára afmæli. Fyrirtækið var stofnað árið 1975 af Grétari Árnasyni, sem hóf starfsemina í bílskúrnum hjá sér. Fyrsta varan var hægindastóll sem hann hannaði sjálfur og nefndi Kiwi – stóll sem varð fljótt vinsæll og lagði grunninn að frekari vexti fyrirtækisins.
Síðan þá hefur G.Á. húsgögn vaxið og þróast með tímanum, en ávallt haldið tryggð við gæði, handverk og íslenska hönnun. Við erum þakklát fyrir stuðninginn í gegnum árin og hlökkum til næstu áratuga með ykkur.